Skip to main content

Elínborg Pálsdóttir náði þeim merka áfanga að fagna 100 ára afmæli sínu sunnudaginn 3. september s.l. Hún er því elsti íbúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar en Elínborg býr á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði. Elínborg er fimm barna móðir en maður hennar var Benedikt Þorsteinsson, sem lést í október 2001. Þau bjuggu í Suðursveit. Í tilefni af afmæli hennar kom fréttamaðurinn Magnús Hlynur hjá Stöð 2 í heimsókn og tók skemmtilegt viðtal við Elínborgu en hér er tengill á viðtalið.

Bæjarstjóri Hornafjarðar, Sigurjón Andrésson færði afmælisbarninu blómvönd í tilefni dagsins.

Í viðtalinu er haft eftir Elínborgu: „Það er gott að vera hérna, þetta er góð elli, maður fær alla hjálp, sem maður þarf, það er stjanað við mann,” segir Elínborg.

Og þú ert orðin 100 ára, hvernig líst þér á það?

„Það er bara ágætt á meðan ég held heilsunni og er ekki niðurbeygð eins og gamalt fólk verður oft,” segir hún.

Elínborg fer út að ganga á hverjum degi með göngugrindina sína og er almennt mjög heilsuhraust.

„Ég hef hreyft mig mikið, ég hef gengið mikið og borðað hollan mat náttúrulega og ekki verið óreglu manneskja og ekki reykt, það er bölvað eitur að reykja,” segir Elínborg.

Við óskum Elínborgu innilega til hamingju með þennan merka áfanga að ná 100 ára aldri!