Skip to main content

Að flytja inn á hjúkrunarheimili

Gott er að undirbúa vel flutning á hjúkrunarheimili því það eru mikil viðbrigði fyrir íbúann. Við það breytist ýmislegt bæði hvað varðar almennt heimilishald og einnig fjármál einstaklinga. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) hafa unnið handbók sem var unnin innan Fagráðs hjúkrunarstjórnenda SFV og er hugsuð til að auðvelda nýjum íbúum og ættingjum þeirra að átta sig á hvað sé innifalið í dvalargjaldi sem greitt er fyrir dvölina frá Sjúkratryggingum Íslands og með lögbundinni greiðsluþátttöku íbúa. Hér er tengill á Handbók Skjólgarðs en ættingjar eru beðnir um að kynna sér efni hennar vel þegar íbúi flyst á Skjólgarð. Það getur einnig verið gott að renna yfir bæklingin Tæknileiðbeiningar fyrir Skjólgarð áður en flutt er inn.

Við innlögn á deild:

Er gott að hafa með sér slopp, inniskó, rakáhöld, tannbursta, tannkrem, greiðu og eða aðrar snyrtivörur sem eru nauðsynlegar. Náttföt, nærföt og léttur klæðnaður til að vera í á daginn sé viðkomandi ekki rúmfastur. Þegar íbúar flytja inn í hjúkrunarrými er nauðsynlegt að merkja fatnað, veita upplýsingar um hagi íbúa svo sem fjármál, fjölskyldumál og annað er þykir nauðsynlegt.

Lyf

Á meðan sjúklingur er inniliggjandi á hann aðeins að nota lyf í samráði við lækna deildarinnar. Lyf og lyfjakort skulu því afhenda lækni eða hjúkrunarfræðingi sem hann fær síðan aftur við brottför svo og ráðleggingar um áframhaldandi meðferð.

Matartímar

  • Morgunmatur       frá kl. 8:30
  • Hádegismatur       kl. 11:30
  • Kaffi                        kl. 14:30
  • Kvöldmatur           kl. 18:00
  • Kvöldkaffi              eftir kl. 20:30
  • Reykingar

    Sjúklingum sem reykja er vinsamlegast bent á að æskilegt er að draga sem mest úr reykingum og þeim boðin hjálparmeðöl s.s. nikótínplástur og tyggigúmmí á meðan á dvöl stendur.

    Heimilisfólki og sjúklingum er heimilt að reykja í bakgarði. Samkvæmt lögum er gestum og starfsfólki með öllu óheimilt að reykja innandyra eða á lóð stofnunarinnar. 
    Verðmæti

    Deildin getur ekki ábyrgst fjármuni né verðmæti sem fólk kemur með. Viðkomandi eru hvattir til að setja verðmæti í geymslu í læstum skáp hjá hjúkrunarfræðingum.

    Sameiginlegt rými á hjúkrunar og sjúkradeild. 

    Sameiginleg setustofa og borðstofa er nýtt sem aðstaða til þjálfunar, afþreyingar og samveru.  Einnig er salurinn nýttur fyrir helgihald, hópastarf tengdu félagsstarfi og uppákomur af ýmsu tagi, eins og dansleiki, tónlistarflutning og ýmiss konar fundahöld.

    Aðstaða utandyra.

    Góð aðstaða er til útiveru á Skjólgarði. Lokaður garður er við vestari enda hússins, önnur útisvæði eru opin. Í garðinum eru bekkir og borð sem nýtt eru á góðviðrisdögum. Heimilisfólk getur farið þar um og notið gróðurs og fallegs útsýnis.