Skip to main content

Að flytja inn á hjúkrunarheimili

Gott er að undirbúa vel flutning á hjúkrunarheimili því það eru mikil viðbrigði fyrir íbúann. Við það breytist ýmislegt bæði hvað varðar almennt heimilishald og einnig fjármál einstaklinga. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) hafa unnið handbók sem var unnin innan Fagráðs hjúkrunarstjórnenda SFV og er hugsuð til að auðvelda nýjum íbúum og ættingjum þeirra að átta sig á hvað sé innifalið í dvalargjaldi sem greitt er fyrir dvölina frá Sjúkratryggingum Íslands og með lögbundinni greiðsluþátttöku íbúa. Hér er tengill á Handbók Seltjarnar en ættingjar eru beðnir um að kynna sér efni hennar vel þegar íbúi flyst á Seltjörn. Það getur einnig verið gott að renna yfir bæklingin Tæknileiðbeiningar fyrir Seltjörn áður en flutt er inn.

Við innlögn á deild:

Er gott að hafa með sér slopp, inniskó, rakáhöld, tannbursta, tannkrem, greiðu og eða aðrar snyrtivörur sem eru nauðsynlegar. Náttföt, nærföt og léttan klæðnað til að vera í á daginn sé viðkomandi ekki rúmfastur. Þegar íbúar flytja inn í hjúkrunarrými er nauðsynlegt að merkja fatnað, veita upplýsingar um hagi íbúa svo sem fjármál, fjölskyldumál og annað er þykir nauðsynlegt. Hjúkrunarheimilið ber ekki ábyrgð á viðkvæmum fatnaði og eða teppum. Slíkt þurfa aðstandendur að sjá um að sé þvegið.

Lyf

Lyf og lyfjakort skal afhenda hjúkrunarfræðingi sem færir það yfir í lyfjaskömmtun hjá heimilinu. Læknir heimilisins hefur yfir umsjá með lyfjameðferð.

Matartímar

  • Morgunmatur       frá kl. 8:30
  • Hádegismatur       kl. 12:00
  • Kaffi                        kl. 14:30
  • Kvöldmatur           kl. 18:00
  • Kvöldkaffi              eftir kl. 20:30
  • Reykingar

    Heimilisfólki er heimilt að reykja í bakgarði heimilisins. Samkvæmt lögum er gestum og starfsfólki með öllu óheimilt að reykja innandyra eða á lóð stofnunarinnar. 

    Verðmæti

    Deildin getur ekki ábyrgst fjármuni né verðmæti sem fólk kemur með. Viðkomandi eru hvattir til að koma sér upp peningaskáp inn í sinni íbúð eða geyma hjá aðstandendum.

    Sameiginlegt rými á heimilinu. 

    Sameiginleg setustofa og borðstofa er nýtt sem aðstaða til þjálfunar, afþreyingar og samveru.  Einnig til hópastarfs tengdu félagsstarfi og fyrir uppákomur af ýmsu tagi, tónlistarflutning og ýmiss konar annað félagslegt.

    Aðstaða utandyra.

    Góð aðstaða er til útiveru á Seltjörn. Upphitaður göngustígur er umhverfis heimilið og ýmis setusvæði. Í garðinum eru bekkir og borð sem nýtt eru á góðviðrisdögum. Heimilisfólk getur farið þar um og notið gróðurs og fallegs útsýnis. Einnig er hægt að fara upp á þak hússins og er þaðan einstakt útsýni yfir nesið og Esjuna.