Þjónandi leiðsögn - Hugmyndafræði hjúkrunarheimila Vigdísarholts

Þjónandi leiðsögn er hugmyndafræði í félags- og heilbrigðisþjónustu sem leggur áherslu á kærleiksrík tengsl og skilyrðislausan stuðning í samskiptum við fólk í viðkvæmri stöðu. Hún á rætur sínar að rekja til hugmyndafræðinnar Gentle Teaching, sem bandaríski fræðimaðurinn John J. McGee þróaði á níunda áratugnum. McGee, J. J. (1987). Gentle Teaching: A Non-Aversive Approach to Helping Persons with Mental Retardation. Human Sciences Press.

Hugmyndafræðin Gentle Teaching byggir á hugmyndum um sálfræðilega gagnkvæmni og samábyrgð (Psychology of Interdependence) og var þróuð af John J. McGee, Daniel C. Hobbs og samstarfsmönnum þeirra. Árið 1992 kynntist Kristinn Már Torfason hugmyndafræðinni í gegnum dr. Rannveigu Traustadóttur sem kom honum í samband við Daniel C. Hobbs. Árið 1993 hófst þjálfun starfsfólks á vistheimilinu Sólborg á Akureyri í grunnþáttum hugmyndafræðinnar, undir leiðsögn Daniel C. Hobbs. Á árunum 1993 til 1997 heimsótti Daniel Ísland þrívegis og fór víða um landið með Kristni. Frá árinu 2012 hófst formleg innleiðing Þjónandi leiðsagnar hjá Akureyrarbæ og í kjölfarið jókst áhugi víða um land á aðferðum hennar.

Fjórar grunnstoðir Þjónandi leiðsagnar eru:

Öryggi – Kærleikur – Kærleiksríkt viðmót – Samvera og þátttaka

Tengsl eru byggð upp með fjórum samskiptaformum:

  • Nærvera: Róleg, hlýleg og ógnunarlaus nærvera.
  • Orð: Hlýlegur og jákvæður tónn og orðaval.
  • Augu: Kærleiksríkt og vinalegt augnsamband.
  • Hendur: Blíðleg og fyrirsjáanleg snerting.

Þjónandi leiðsögn byggir á kærleiksríkri nálgun. Við beitum ekki hörku. Það er lögð áhersla á að byggja upp samband við íbúana með stuðningi og hvatningu. Íbúum er alltaf sýnd nærgætni og vinsemd. Ef einhver sýnir „krefjandi“ hegðun þá er honum ekki refsað, skammaður eða hótað. Við mætum alltaf slæmu með góðu. Þjónandi leiðsögn snýst um skilyrðislausa umhyggju og kærleika. Horft er til þess að einstaklingar kunna að bera með sér minningar um vantraust, ótta og vonbrigði. Þess vegna beinir þjónandi leiðsögn sjónum sínum að tengslamyndun og samkennd. Við myndun félagslegra tengsla dregur úr ofbeldishegðun, hún hverfur jafnvel alveg og nýtt hegðunarmynstur þróast. Við náum til annarra með góðvild, með því að skynja þarfir þeirra fyrir mannlega nánd og með því að sýna umhyggju og kærleika.

Sjálfsvinna starfsfólks
Þjónandi leiðsögn gerir kröfur um að starfsfólk horfi inn á við, nýti það góða sem býr innra með hverjum manni og gefi af sér hlýju og skilyrðislausa umhyggju í garð annarra. Ferlið byrjar hjá okkur sjálfum. Við þurfum að vera tilbúin að gefa af okkur án þess að ætlast til að fá nokkuð til baka. Það starfsfólk sem vinnur samkvæmt þjónandi leiðsögn skuldbindur sig til að nota grunngildi þjónandi leiðsagnar í allri sinni vinnu og beita aldrei ofbeldi af neinu tagi í samskiptum sínum.

Allt starfsfólk fer í gegnum grunnnámskeið í þjónandi leiðsögn á hjúkrunarheimilum Vigdísarholts en leiðbeinandi heimilisins er Jóhanna Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á Álfhóli en hún hefur lokið leiðbeinanda námskeiði í þjónandi leiðsögn.