Nemendur í Verzlunarskóla Íslands halda árlega góðgerðarviku þar sem þau standa fyrir viðburðum og fleira í góðgerðarskyni. Í ár heimsóttu nemendur nokkur hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og meðal annars komu þau á Sunnuhlíð. Þau voru með tvo viðburði á Sunnuhlíð. Það var slegið upp harmonikkuballi þar sem nemendurnir buðu íbúum upp í dans og sungu með tónlistinni. Seinni daginn stóðu þau fyrir bingói þar sem þau sáu alfarið um að safna vinningum sem íbúar nutu góðs af. Íbúar höfðu virkilega gaman af þessari nýbreytni og eiga þau hrós skilið fyrir þetta fallega framtak.

Við þökkum þessum fyrirmyndarnemum fyrir frábæra skemmtun.