Hirðingjarnir á Hornafirði er nytjaverslun sem er rekin í góðgerðarskyni. Þar vinna í sjálfboðastarfi öflugar konur sem vilja láta gott af sér leiða og margar þeirra eru gamlir starfsmenn Skjólgarðs. Þær taka við notuðum munum svo sem húsgögnum, borðbúnaði, eldhúsbúnaði hvers kyns, leikföngum, raftækjum og fleiru. Munirnir eru endurseldir út til samfélagsins og ágóði af starfseminni rennur til samfélagsins. Þær gáfu Skjólgarði 2 milljónir króna á 50 ára afmæli heimilisins árið 2024 og bættu við 2 milljónum við þá gjöf í ágúst síðastliðnum þegar nýtt heimili var vígt. Heimilið hefur því 4 milljónir til að nýta í búnaðarkaup á heimilinu. Hirðingjarnir hafa margsinnis gefið heimilinu gjafir sem hafa nýst starfseminni afar vel.

Við viljum þakka Hirðingjunum fyrir hlýhug og gjafmildi um leið og við hvetju íbúa Hornafjarðar til að halda áfram að koma hlutum í verð í Hirðingjunum og ekki síst að versla við þær.