Starfsfólk Vigdísarholta fór saman til Valencia í árshátíðarferð dagana 30. október – 2. nóvember. Farið var með Heimsferðum í leiguflugi með rúmlega 130 manna hóp starfsmanna af öllum heimilum fyrirtækisins. Boðið var upp á kynnisferð fyrsta daginn þar sem gengið var um “Borg menningar og vísinda” um almenningsgarð sem byggður var upp í gömlum árfarvegi og endað í gamla bænum. Borgin býður upp á góðan mat, fallegt umhverfi og strandlíf þannig að starfsmenn gátu fengið fjölbreytta afþreyingu sem hentar mismunandi þörfum. Árshátíð starfsmanna var haldin á hóteli í borginni þar sem trúbador hélt uppi stemmningu og starfsmönnum voru veittar viðurkenningar. Litaþema árshátíðarinnar var rautt og svart enda árshátíðin haldin á aðal degi hrekkjarvökunnar eða þann 31. október. Ferðin var mjög vel heppnuð, veður lék við okkur og borgin bauð upp á góðan mat, fallegt umhverfi og svo var félagsskapurinn af betri gerðinni.



























