Skip to main content

Iðjuþjálfun

Iðjuþjálfun og félagsstarf á Seltjörn hefur það að markmiði að gefa heimilisfólkinu tækifæri til þátttöku í þeirri iðju sem það  hefur áhuga á og veitir þeim lífsfyllingu og ánægju.

Á vegum iðjuþjálfunar er boðið upp á bæði einstaklings- og hópastarf.

Hópar sem starfa núna eru m.a. handverkshópur, spurt og spjallað, herraklúbbur, minningahópar, upplestur, söngstundir, stólaleikfimi, boccia ofl.  Haldið er bingó einu sinni í mánuði, gjarnan með dagdvölinni, ýmsir tónlistarviðburðir eru haldnir og fáum við heimsóknir frá skólum bæjarins og fleiri aðilum. Helgistund er einu sinni í mánuði.

Iðjuþjálfun vinnur einnig með Namaste Care vellíðunarmeðferð sem hefur það að markmiði að bæta vellíðan íbúa og draga úr óróleika.

Iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari sjá um að útvega heimilisfólkinu hjálpartæki svo sem hjólastóla og fylgihluti og ýmis smærri tæki.

Stundatafla hangir á töflum heimilanna.

Yfir iðjuþjálfi: María Þórðardóttir

Sími 852 1159

Netfang: mariath@vigdisarholt.is