Stórt framfararskref í uppbyggingu hjúkrunarþjónustu á Höfn – nýtt hjúkrunarheimilivígt
Nýtt hjúkrunarheimili var vígt við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði í dag. Meðal vígslugesta voru Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra sem leiðir uppbyggingu hjúkrunarrýma, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Alma Möller, heilbrigðisráðherra.
Með nýju byggingunni verður mikil breyting á aðstöðu íbúa og stigið mikilvægt framfararskref í uppbyggingu hjúkrunarþjónustu á svæðinu. Húsnæðið stenst allar nútímakröfur sem gerðar eru til hjúkrunarheimila og mun hver íbúi hafa sitt einkarými og allur aðbúnaður vera eins og best verður á kosið. Fram undan er síðari áfangi verkefnisins sem felst í endurbótum á eldra húsnæði heimilisins. Sá hluti verkefnisins verður boðinn út sérstaklega og verður þess vonandi ekki langt að bíða að hið nýja og endurbætta hjúkrunarheimili verði komið í fulla virkni.
Undirbúningur að uppbyggingu Skjólgarðs á sér nokkurn aðdraganda. Samkomulag milli ríkis og sveitarfélagsins um byggingu nýs hjúkrunarheimilis var undirritað í maí 2018 og í kjölfarið var efnt til hönnunarsamkeppni. Við val á hönnun var meðal annars lögð áhersla á að heimilið yrði vistlegt, að þar yrðu góð rými til útivistar og að horft yrði til framtíðar í tæknilegum lausnum. Jafnframt var lögð áhersla á haganlega útfærslu herbergja, gott vinnuumhverfi starfsfólks, hagkvæmni í rekstri og að nýja viðbyggingin félli vel að umhverfi sínu.
Tillaga BASALT arkitekta og EFLU verkfræðistofu varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppninni. Í umsögn dómnefndar kemur fram að tillagan byggi á Eden-hugmyndafræðinni þar sem áhersla er lögð á lífsgæði og vellíðan íbúa. Hönnun hússins tekur jafnframt mið af umhverfinu, núverandi byggð og því einstaka útsýni sem staðsetning Skjólgarðs býður upp á.
Bætt aðstaða fyrir íbúa og starfsfólk
Fyrsta skóflustunga að framkvæmdunum var tekin 20. september 2022. Nýbyggingin sem nú hefur verið tekin í notkun er fyrri áfangi heildarverkefnisins sem miðar að því að stórbæta aðstöðu fyrir íbúa og starfsfólk. Verkefnið felur í sér bæði viðbyggingu við Skjólgarð og umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði heimilisins. Góð tengsl eru á milli einstakra hluta heimilisins og horft hefur verið til þess að nýta staðsetninguna og útsýnið sem best.
Þegar öllum framkvæmdum lýkur verða þar 30 hjúkrunarrými og þrjú sjúkrarými, auk aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og dagdvöl. Hjúkrunarrýmum mun fjölga um sex frá því sem nú er.
Mikilvægur áfangi í hjúkrunarþjónustu á Höfn
„Opnun Skjólgarðs er mikið gleðiefni og mikilvægur áfangi fyrir samfélagið í Hornafirði. Hér hefur verið skapað fallegt og nútímalegt heimili þar sem vellíðan, öryggi og lífsgæði íbúa eru höfð að leiðarljósi, ásamt góðri aðstöðu fyrir starfsfólk. Ég óska íbúum, aðstandendum og starfsfólki innilega til hamingju með þennan merka áfanga og vona að Skjólgarður verði um ókomin ár hlýlegt og gott heimili þar sem mannlíf og samvera fá að blómstra segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem einnig fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila.“
„Þetta eru langþráð og mikilvæg tímamót. Hér mun fara vel um heimilisfólk. Starfsfólk Skjólgarðs á mikinn heiður skilið fyrir að gera Skjólgarð fyrr og nú að góðu heimili og hvernig þeim hefur tekist að byggja upp notalegan anda hér á heimilinu. Ég vil jafnframt færa verktökum sérstakar þakkir fyrir þeirra góða starf á undanförnum vikum og mánuðum. Þeir tóku við verkefninu í erfiðri stöðu en skiluðu því af sér með miklum sóma. Að lokum vil ég óska íbúum á Hornafirði innilega til hamingju með þessi mikilvægu tímamót”, segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar.
„Þetta er sérstök ánægjustund sem við upplifum hér í dag, hér vígjum við glæsilegt heimili og færum þannig aðstöðu fyrir íbúa og starfsfólk til nútímahorfs. Ég vil þakka starfsfólki sérstaklega fyrir þolinmæði og þrautseigju á framkvæmdartíma, á ýmsu hefur gengið. Einnig vil ég færa íbúum, aðstandendum og framkvæmdaraðilum kærar þakkir fyrir gott samstarf á undanförnum árum. Nýja heimilið er glæsilegt og útsýnið það besta sem ég hef séð”, segir Kristján Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vigdísarholts ehf. sem annast rekstur hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs á Höfn.

















