Skip to main content

Nú eru hafnar framkvæmdir við annan af þremur stórum áföngum við endurbyggingu á húsnæði Sunnuhlíðar þar sem áætluð verklok verða í desember 2026.  Í þessum áfanga felst endurbygging á legudeildinni Lundi þar sem deildin er breikkuð og hjúkrunarrýmin stækkuð. Þetta felur í sér að allt þakið er tekið af og nýr útveggur verður reistur.  Að framkvæmdum loknum verða til 10 ný hjúkrunarrými sem öll munu standast ítrustu kröfur um stærð, gæði og glæsileika. Verktakinn í þessu verki er K16 ehf.

Framkvæmdinni fylgja að sjálfsögðu einhver óþægindi þar sem full starfsemi er í húsinu. Til að takmarka ónæðið hefur verið byggður sérstakur tengigangur fyrir utan heimilið sem verður tekinn niður við verklok. Að öðru leiti kemur heimilisfólk og starfsfólk ekki til með að finna fyrir miklu ónæði af framkvæmdinni. Það ríkir afar mikil ánægja og tilhlökkun hjá okkur öllum að taka þetta nýja rými í notkun á aðventunni.