Skip to main content

Framkvæmdir á Skjólgarði ganga vel núna. Ístak tók yfir verkstjórn yfir verkefninu eftir að samningum var slitið við fyrri verktaka. Mikið af heimamönnum vinna nú við bygginguna og góður gangur er í framkvæmdunum. Langt er komið með að klæða húsið að utan en beðið er eftir klæðningarefni úr lerki að utan. Eins er þakið að verða klárt. Innanhús framkvæmdir ganga einnig vel, nær allar innréttingar eru komnar upp og gólfefni á herbergjum. Það er því farið að nálgast verklok í nýbyggingunni. Stefnt er að því að geta flutt inn í nýtt eldhús um mánaðarmótin mars/apríl sem verður mikil bylting fyrir starfsfólk. Gert er ráð fyrir því að geta flutt alla starfsemina um mánaðarmótin maí/júní. Íbúar og starfsfólk bíður spennt eftir því að flytja en tekin verða í notkun 20 ný herbergi. Áfram mun þurfa að tvímenna í einhver herbergi þar til endurbótum á gamla Skjólgarði verður lokið en sú framkvæmd verður boðin út fljótlega.

Starfsfólk Skjólgarðs fékk hrós í Eystrahorni nú í vikunni fyrir að standa vaktina í afar þröngum aðstæðum í allt of langan tíma. Hér má sjá nokkrar myndir frá nýja Skjólgarði.