Sunnuhlíð býður 60 ára og eldri upp á frábæra aðstöðu til heilsueflingar í Smart líkamsrækt. Æfingasalurinn er búinn nýjum styrktarþjálfunartækjum sem eru þægileg í notkun og sérstaklega hönnuð með þennan aldurshóp í huga. Styrktarþjálfunartækin eru með mjúkri loftmótstöðu sem dregur úr álagi á liði og vöðva. Notendavænn tölvubúnaður er tengdur tækjunum sem gerir þjálfun í senn einfalda og markvissa.
Við erum á Kópavogsbraut 1c. Gengið er inn að sunnanverðu, ská á móti Kópavogsbraut 1b. Síminn hjá okkur er 854 8972.
Skref 1: Þú skráir þig í frían kennslutíma með því að hringja í síma 854 8972 eða mæta á staðinn.
Skref 2: Ef þér líst vel á, ákveður þú hvort þú viljir vera í 6 vikna hóptímum hjá þjálfara (hóptímum
fylgir 2ja mánaða kort í sal) eða vera eingöngu með kort í sal (innifelur afnot af tækjasal án þjálfara).
Skref 3: Þú verslar þér kort í salinn, með eða án hóptíma (á staðnum, tekið er við greiðslukortum).
Mán, þri, fim: 9.00 – 12.00 / 12.45 – 18.00
Mið: 9.00 – 11.30 / 12.45 – 15.00
Fös: 9.00 – 12.00 / 12.45 – 15.00
Lau: 9.00 – 12.00
Það er velkomið að koma hvenær sem er innan opnunartímans.
Milli kl. 9.00 og 15.00 á virkum dögum fer einnig fram starfsemi sjúkraþjálfunar í Smart líkamsrækt Sunnuhlíð. Álagið í salnum er því minna milli kl. 15.00 og 18.00 mán, þri og fim og á laugardögum 9.00 – 12.00. Ef þess er óskað að koma fyrr að deginum getur starfsfólk gefið frekari upplýsinar um hugsanlega álagstíma.
Kort í sal veitir aðgang að tækjasal án þjálfara. Gert er ráð fyrir að fólk geti verið nokkuð sjálfbjarga í tækjasalnum. Ef erfiðlega gengur að læra á tækin er um að gera að skrá sig frekar í hóptíma eða íhuga að komast að hjá sjúkraþjálfurum á staðnum.
Stakur tími: 1.000 kr.
10 skipta kort: 3.000 kr.
Mánaðarkort: 3.000 kr.
3ja mánaða kort: 7.500 kr.
Árskort: 24.000 kr.
Það getur verið gott að skrá sig í hóptíma til að koma sér af stað. Hóparnir eru smáir, þrír í hverjum hópi og boðið er upp á eftirfarandi tvær tegundir hópþjálfunar:
6 vikna styrktar- og teygjunámskeið: áhersla á styrk og liðleika.
- Hóptímar, 2x í viku í 6 vikur + 2ja mánaða kort í sal: 8.500 kr.
(mögulegir tímar: þri + fim kl. 11.15 eða mán + fim kl. 15.30)
6 vikna styrktar- og færninámskeið: áhersla á styrk, snerpu, jafnvægi og æfingar sem miða að því að þjálfa eða viðhalda færninni að standa upp frá gólfi (unnið út frá færni hvers og eins).
- Hóptímar, 2x í viku í 6 vikur + 2 mánaða kort í sal: 8.500 kr.
(mögulegir tímar: mán + mið kl. 14.15 eða mán + fim kl. 16.15)
Oddfellow, Rbst. nr. 7, Þorgerður
Oddfellow, Rbst. nr. 17, Þorbjörg
Rótarýklúbburinn Borgir
Sunnuhlíðarsamtökin