Sjúkraþjálfari starfar á Skjólgarði þar sem hann sinnir bæði heimilisfólki og þeim sem leggjast inn í sjúkra- og hvíldarinnlögn.
Sjúkraþjálfunaraðstaða er vel tækjum búin en er staðsett í öðru húsnæði gegnt Skjólgarði. Sjúkraþjálfun fer því að mestu leyti fram á hjúkrunardeildinni bæði í formi einstaklings og hópþjálfun.
Markmið sjúkraþjálfunar er að:
- Veita skjólstæðingum sjúkraþjálfunar viðeigandi þjálfun, fræðslu og ráðgjöf með því markmiði að auka og/eða viðhalda líkamlegri, andlegri og félagslegri getu þeirra.
- Að auka eða viðhalda færni og hreyfigetu íbúanna og auðvelda þeim að takast á við hið daglega líf á stofnuninni ásamt því að gera umönnun léttari.
- Endurhæfa sjúklinga í sjúkra- og hvíldarrýmum með því markmiði að þeir geti útskrifast heim í sitt fyrra umhverfi.
- Veita starfsmönnum fræðslu og ráðgjöf í vinnuvistfræði.
Yfirsjúkraþjálfari Skjólgarðs er Einar Smári Þorsteinsson.
Netfang: einarsmari@skjolgardur.is