Við biðjum skjólstæðinga okkar og aðstandendur þeirra vinsamlega að ræða ekki um sjúkdóma og meðferð annarra og munið að allt starfsfólk hefur skrifað undir þagnarskyldu.
Á Skjólgarði eru gestir ávallt velkomnir.
Fyrir hádegi er heimilisfólk að undirbúa sig undir daginn og því sá tími sem hentar síst til heimsókna og er því ágætt að hafa heimsóknir á þeim tíma í samráði við vakthafandi hjúkrunarfræðing og heimilismann.
Aðstandendur mikið veikra sjúklinga í sjúkrarýmum geta verið hjá ástvinum sínum allan sólahringinn ef þess er óskað. Gott er að ræða málið við hjúkrunarstjóra eða vakthafandi hjúkrunarfræðing.
Gestum er velkomið að taka með sér dýr í heimsókn ef áhugi er fyrir því en dýrin vekja ávallt kátínu hjá íbúum.