Húsnæði sjúkraþjálfunar er staðsett í miðju heimilisins í björtu og aðlaðandi rými. Deildin er ágætlega tækjum búin.
Markmið sjúkraþjálfunar er að:
- Viðhalda og auka færni og lífsgæði íbúa með viðurkenndum aðferðum sjúkraþjálfunar
- Gæta þess að hver íbúi hafi það hjálpartæki sem hentar
- Endurhæfa eftir brot og önnur áföll
Þjálfunin fer bæði fram á deildunum sjálfum og í tækjasal. Reynt er að ná til sem flestra heimilismanna með viðeigandi úrræðum og áhersla lögð á almenna hreyfingu. Hver deild hefur sinn afmarkaða tíma í sjúkraþjálfun og tekur þjálfunin mið af færni hvers og eins. Boðið upp á verkjameðferð, sogæðanudd og slökun sé þess þörf.
Sjúkra – og iðjuþjálfi annast alla umsýslu hjálpartækja, þ.e. útvegun, aðlögun, viðgerðir og skil. Sjúkraþjálfari skráir skv. reglum í sjúkraskrárkerfið Sögu og tekur þátt í framkvæmd RAI mats.
Gestir í dagdvöl hafa aðgang að tækjasal og njóta aðstoðar starfsmanns þaðan.
Sjúkraþjálfunin er opin alla virka daga frá kl. 08:00
Yfir sjúkraþjálfari:
Bryndís Fanný Guðmundsdóttir.
S. 844-6223
Netfang: bryndisg@sunnuhlid.is