Á fundi með félags- og húsnæðismálaráðherra, Ingu Sæland, var í dag handsalaður samningur um byggingu á nýrri Sunnuhlíð sem fyrirhugað er að rísi við Kópavogsbraut. Með þessu samkomulagi hefur Inga Sæland svarað rúmlega fimm ára gamlli umsókn Vigdísarholts um nýtt húsnæði fyrir Sunnuhlíð. Nú þegar hefur Vigdísarholt skipað vinnuhóp sem tekið hefur til starfa og mun sjá undirbúning og hönnun nýja heimilisins. Miðað er við að framkvæmdir geti hafist á þessu ári eða snemma á næsta ári. Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir íbúa Kópavogs. Hér fyrir neðan má sjá mynd af Kristjáni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Vigdísarholts, og Ingu Sæland, ráðherra.