Skip to main content

Íbúum Seltjarnar og Sunnuhlíðar var boðið á opna æfingu Sinfóníuhljómsveitar Íslands þann 9. janúar síðastliðinn í Hörpunni.

Það voru glaðir íbúar og aðstandendur sem skelltu sér á Vínartónleika með sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpunni. Glæsilegir tónleikar í alla staði og var þetta frábær skemmtun og mikil upplifun.

Þökkum Sinfóníunni fyrir frábært boð og skemmtun.