Skip to main content

Nú er að ljúka einum af þremur stórum áföngum við endurbyggingu á Sunnuhlíð. Framkvæmdir á þessum hluta hófust síðasta haust og er fyrirhuguð opnun í næstu viku.  Um er að ræða svokallað miðrými en það er aðalinngangur, matsalur, vakt, fundarherbergi og sólskáli auk þess sem eitt hjúkrunarrými var endurnýjað. Um töluverða framkvæmd er að ræða en lofthæðin var aukin verulega en til þess þurfti að rjúfa þakið og byggja nýtt þak eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan. Framkvæmdir hafa gengið vel en THG Arkitektar hafa haldið utan um hönnun og byggingarstjórn og Þarfaþing verktakar hafa séð um framkvæmdahlutann. Breytingin er afar vel heppnuð eins og sjá má á myndunum.

Hér á myndunum fyrir neðan má sjá hvernig framkvæmdirnar hafa þróast frá því þær hófust og hvernig húsnæðið leit út fyrir breytingu.