Skip to main content

Endurbætur á Sunnuhlíð halda áfram en nú er búið að taka í notkun tvö ný hjónaherbergi á deildinni Álfhól. Herbergin eru hvort um sig 35 fm að stærð, með sér baðherbergi. Þau eru staðsett á jarðhæð deildarinnar en grafið var frá húsinu norðan megin til að fá inn góða birtu. Herbergin verða nýtt sem biðrými fyrir þá sem hafa fengið samþykkt færni- og heilsumat og eru á biðlista eftir varanlegu hjúkrunarrými. Hér má sjá myndir af nýju herbergjunum á Álfhól.

Nú þegar herbergin á Álfhól eru tilbúin hefst næsti áfangi framkvæmda í Sunnuhlíð. Undirbúningur hefur staðið að endurbótum á deildinni Lundi. Þar stendur til að fara í almenna endurnýjun þar sem húsnæðið er gamalt og farið að láta á sjá. Verkið er nú í útboðsferli og er áætlað að framkvæmdir hefjist 9. mars. Hér fyrir neðan má sjá myndir af því hvernig húsnæðið mun líta út að endurbótum loknum.