Skip to main content

Jafnréttisáætlun og jafnlaunastefna

Stefna Vigdísarholts í jafnréttismálum er að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna innan vinnustaðarins. Í áætluninni eru sett upp markmið og aðgerðaráætlanir til að ná þessum markmiðum. Jafnréttisáætlunin gildir fyrir allt starfsfólk Vigdísarholts. Jafnréttisáætlunin er sett fram samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr.150/2020, og annarra laga, krafna og kjarasamninga er snúa að jafnrétti.

Markmið
Vigdísarholt leggur áherslu á jafnan rétt kynjanna til launa, stöðuveitinga, starfa og þátttöku í nefndum og störfum meðal allra starfsstétta Vigdísarholts. Starfsfólk Vigdísarholts skal enn fremur njóta sömu tækifæra, réttinda og starfsaðstæðna óháð kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum eða öðrum þáttum. Vigdísarholt hefur öðlast jafnlaunavottun skv. 7 gr. laga nr. 150/2020. Ár
hvert verður unnið að viðhaldsvottun og þriðja hvert ár endurvottun.

Eftirfarandi eru markmið Vigdísarholts:

  1. Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyn
  2. Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni
  3. Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni.
  4. Lögð er áhersla á að starfsfólk geti samræmt vinnutíma og fjölskyldulíf eins og kostur er.
  5. Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna.
  6. Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustaðnum.

Ágreiningsmál
Ef upp kemur ágreiningur vegna jafnréttismála þá er hægt að vísa honum til
framkvæmdastjóra.

Endurskoðun jafnréttisáætlunar Vigdísarholts
Unnið verður að stöðugum umbótum á stefnunni, henni fylgt eftir og brugðist við ef ástæða er til. Endurskoðun stefnunnar fer reglulega fram, ekki sjaldnar en einu sinni á ári í tengslum við yfirferð á jafnlaunakerfinu er tengist jafnlaunavottun. Mikilvægt er að markmið og aðgerðaráætlanir séu í samræmi við daglegt starf Vigdísarholts. Jafnréttisáætlun Vigdísarholts gildir til maí loka 2028.

Samþykkt af framkvæmdastjórn 10. júní 2025

Kristján Sigurðsson
Framkvæmdastjóri

Samþykkt af Jafnréttisstofu 10. júní 2025