Skip to main content

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs afhenti hjúkrunarheimilinu Skjólgarði glænýjan fótaaðgerðarstól. Fótaaðgerðarfræðingurinn Signý Ingvadóttir kemur reglulega á hjúkrunarheimilið og sinnir íbúum heimilisins. Aðstaðan hefur fram til þessa verið mjög léleg bæði fyrir íbúa og fyrir fótaaðgerðarfræðinginn. Stjórn gjafasjóðsins hafði lýst yfir áhuga á að gefa heimilinu nýjan stól þegar nýbyggingin yrði tilbúin. Þar sem það hefur dregist var tekin ákvörðun um að kaupa nýjan stól strax og byrja að nota hann. Stóllinn er hinn glæsilegasti og hefur nú þegar verið notaður. Líkt og sjá má á myndinni er mikil ánægja með stólinn. Við viljum þakka Gjafa- og minningarsjóði Skjólgarðs innilega fyrir þessa góðu gjöf.