JAFNVÆGI, LIÐLEIKI, STYRKUR OG VELLÍÐAN. Á ÞÍNUM HRAÐA Í ÖRUGGU UMHVERFI

Vertu velkomin í Smart líkamsrækt Sunnuhlíð

Sunnuhlíð býður 60 ára og eldri upp á frábæra aðstöðu til heilsueflingar í Smart líkamsrækt. Æfingasalurinn er búinn nýjum styrktarþjálfunartækjum sem eru þægileg í notkun og sérstaklega hönnuð með þennan aldurshóp í huga. Styrktarþjálfunartækin eru með mjúkri loftmótstöðu sem dregur úr álagi á liði og vöðva. Notendavænn tölvubúnaður er tengdur tækjunum sem gerir þjálfun í senn einfalda og markvissa.

Við erum á Kópavogsbraut 1c. Gengið er inn að sunnanverðu, ská á móti Kópavogsbraut 1b. Síminn hjá okkur er 854 8972.

Til að hefja heilsueflingu

Skref 1:  Þú skráir þig í frían kennslutíma með því að hringja í síma 854 8972 eða mæta á staðinn.

Skref  2:  Að loknum kennslutíma metur þú hvort einstaklingsþjálfun henti þér eða hvort kort í salinn dugi (innifelur afnot af tækjasal án einstaklingsþjálfunar).

Skref 3:  Þú kaupir þér kort í salinn án staðnum, með eða án þjálfara. Tekið er við greiðslukortum.

Opnunartímar

Mánudaga: 9.00 – 11.30 / 12.45 – 18.00

Þriðudaga og fimmtudaga:   9.00 – 12.00   /   12.45 – 18.00

Miðvikudaga og föstudaga:   9.00 – 12.00   /   12.45 – 15.00

Laugardaga:  9.00 – 12.00

Gestum Smart líkamsræktarinnar er velkomið að nýta aðstöðuna hvenær sem er innan opnunartímans, en þó með þeim fyrirvara að tekið sé tillit til starfsemi sjúkraþjálfunar Sunnuhlíðar sem hefur aðstöðu í líkamsræktinni. Starfsemi sjúkraþjálfunar fer fram milli kl. 9.00 – 15.00 á virkum dögum og Smart gestir eru beðnir að aðlaga sig álagi og aðstæðum í tækjasalnum hverju sinni.

Álagið í salnum er minna milli 15.00 og 18.00 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, þegar sjúkraþjálfunin hefur lokið sinni starfsemi og á laugardögum 9.00 – 12.00. Ef gestir Smart líkamsræktar kjósa að koma fyrr að deginum þegar sjúkraþjálfunin er opin getur starfsfólk gefið frekari upplýsingar um hugsanlega álagstíma.

Kort í sal – verðskrá og upplýsingar

Kort í sal veitir aðgang að tækjasal án þjálfara. Gert er ráð fyrir að fólk geti verið nokkuð sjálfbjarga í tækjasalnum. Ef erfiðlega gengur að læra á tækin er ráðlagt að skrá sig í einstaklingsþjálfun eða óska eftir að komast að hjá sjúkraþjálfurum á staðnum.

Stakur tími:                      1.100 kr.
10 skipta kort:                 3.500 kr.
Mánaðarkort:                  3.500 kr.
3ja mánaða kort:            8.500 kr.
Árskort:                            26.500 kr.

Hóptímar hjá þjálfara – verðskrá og upplýsingar

Einstaklingsþjálfun (4 vikur: 8 tímar + kort í sal) – verðskrá og upplýsingar 

Einstaklingsþjálfun getur verið góður kostur fyrir þá sem vilja stuðning við að koma sér af stað. Einstaklingsþjálfun hentar þeim sem hafa þörf fyrir leiðsögn umfram þá sem veitt er í fría kennslutímanum, óska eftir aðhaldi, teygjuæfingum eða færniþjálfun. Lögð er áhersla á að þjálfa upp styrk, auka liðleika og vinna með æfingar sem miða að því að bæta eða viðhalda grunnfærni, eins og t.d. jafnvægi, standa og setjast eða standa upp frá gólfi. 

Unnið er út frá færni og óskum hvers og eins.  

Ef grunnfærni eru verulega skert má vera að sjúkraþjálfun eigi betur við en einstaklingþjálfun í Smart. Starfsfólk Smart mun þá ráðleggja um viðeigandi úrræði. 

Einstaklingsþjálfun 12.000 kr.
Tveggja manna tími     9.000 kr. 

Styrktaraðilar Smart líkamsræktar Sunnuhlíð

Oddfellow, Rbst. nr. 7, Þorgerður

Oddfellow, Rbst. nr. 17, Þorbjörg

Rótarýklúbburinn Borgir

Sunnuhlíðarsamtökin